Man ég rangt....?

Var ekki framboðsfrestur til formanns Samfylkingarinnar lokið og einu í framboði voru Ingibjörg og Jón Baldvin....eða var ég bara að dreyma?  Það væri ekki í fyrsta skiptið :P  Vil endilega fá svör við þessu hvort J.B.H sé sjálfkjörinn formaður samfylkingarinnar eða hvað?
mbl.is Ingibjörg Sólrún hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Egill M. Friðriksson

Það er 10 daga framboðsfrestur skv. reglum Samfylkingarinnar.

Egill M. Friðriksson, 8.3.2009 kl. 17:24

2 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Ég var einmitt að spá í þessu. Alveg fáránlegt ef gamli jálkurinn er sjálfkjörinn.

Rúnar Þór Þórarinsson, 8.3.2009 kl. 18:06

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Það er spurning hvort Ágúst Ólafur Ágústsson hyggi á endurkomu í stjórnmálin og fari í formanns slaginn gegn Jóni. Einnig tel ég ekki ólíklegt að Jóhanna gæti komið sterk inn í slaginn.

Hilmar Gunnlaugsson, 8.3.2009 kl. 18:18

4 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Hvernig væri að fá nýtt og kraftmikið fólk inn og reyna að skilja þetta rugl heiðarlega að baki?

Rúnar Þór Þórarinsson, 8.3.2009 kl. 19:13

5 Smámynd: Tjörvi Dýrfjörð

Formannskosning í Samfylkingunni er óhlutbundinn og ekki um framboðsfrest að ræða í raun þá eru allir félagsmenn í framboði en samkvæmt venju þá er oftast kosið um persónur sem gefa með opinberum hætti kost á sér en það sjást alltaf nokkur atkvæði með nöfnum hinna og þessa. þetta er sama regla og hjá Sjálfstæðisflokknum. þannig að þó svo að Jón Baldvin verði einn í framboði þá þarf engu síður að kjósa svo hann verður aldrei sjálfkjörinn.

Tjörvi Dýrfjörð, 8.3.2009 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband